27.03.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Kristján Ari og Jóhann Björns í Létti (Staðfest)

Kristján, Jóhann og Elías.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kristján Ari Halldórsson og Jóhann Björnsson hafa báðir skipt úr ÍR yfir í Létti sem er varalið Breiðholtsliðsins. Þeir hafa ekki æft með ÍR-ingum í vetur en Kristján sagði í samtali við Fótbolta.net að ekki væri útilokað að hann færi til baka í sumar.
Kristján er kant- og sóknarmaður fæddur 1987 og hefur leikið með meistaraflokki ÍR samfleytt síðan 2003. Í fyrra lék hann átján leiki í 1. deildinni og skoraði eitt mark.
Jóhann er varnarmaður fæddur 1985. Hann er uppalinn hjá ÍR en hefur einnig leikið fyrir HK. Í fyrra lék hann sextán leiki í 1. deildinni.
Ljóst er að Léttir er að fá góðan liðsstyrk þarna fyrir komandi átök í 3. deildinni.
Þá er sóknarmaðurinn Elías Ingi Árnason hættur hjá ÍR en hann hyggst taka sér frí frá fótboltaiðkun. Elías var markakóngur 2. deildar 2008 þegar hann skoraði 21 mark í 19 leikjum fyrir ÍR þegar liðið vann deildina.