Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fös 27. mars 2026 21:03
Ívan Guðjón Baldursson
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Bjarni Guðjón Brynjólfsson skoraði fyrra mark leiksins í 1-1 jafntefli hjá Þór og KA í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins í dag.

Lestu um leikinn: Þór 8 -  7 KA

Bjarni Guðjón náði forystunni fyrir Þór með glæsilegu en KA jafnaði á lokamínútunum svo leikurinn réðist eftir vítaspyrnukeppni. Þar hafði Þór betur og varði titilinn á milli ára.

„Ég hef aldrei unnið þetta mót áður svo þetta er frábært og gaman að gera það í vító. Þetta var erfiður leikur, það er alltaf alvöru slagur þegar Þór og KA mætast, ég held það séu ekki til skemmtilegri leikir en þetta," sagði Bjarni hikstandi en brosandi að leikslokum, en honum var skipt af velli fyrir vítaspyrnukeppnina.

„Það var spennandi og stressandi að fylgjast með þessu en gaman útaf því að þetta endaði vel. Þetta var svakaleg varsla hjá Aroni."

Mark Bjarna var einstaklega laglegt þar sem boltinn barst skoppandi til hans utan vítateigs. Bjarni smellhitti boltann sem skaust í stöngina og inn, gjörsamlega óverjandi skot.

„Boltinn datt bara fullkomlega fyrir mig og ég held ég hafi bara aldrei hitt hann svona vel. Mér leið mjög vel inni á vellinum, við spiluðum vel svona 2/3 af leiknum."

Bjarni er uppalinn hjá Þór en lék með FH í Bestu deildinni í fyrra og er spenntur að taka slaginn með uppeldisfélaginu.
Slapp
banner