27.04.12 - 09:50
Magnús Már Einarsson
Guardiola hættir með Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Pep Guardiola mun hætta sem þjálfari Barcelona eftir tímabilið en hann hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við félagið.
Guardiola mun væntanlega taka sér frí frá fótbolta en hann ætlar að svara spurningum fjölmiðla á fréttamannafundi síðar í dag.
Guardiola fundaði með Sandro Rossell forseta Barcelona í gær þar sem hann tilkynnti ákvörðun sína. Hann tilkynnti leikmönnum síðan um ákvörðunina á æfingu í morgun.

Hinn 41 árs gamli Guardiola hefur stýrt Barcelona síðan árið 2008 og unnið þrettán titla með liðið.
Guardiola hefur átt mjög erfiða viku með Barcelona liðið sem var besta lið síðasta árs og vann allt sem var í boði þá.
Í vikunni tapaði liðiði gegn Real Madrid og varð þar með nánast úr leik í baráttuni um spænska titilinn.
Liðið féll svo út í undanúrslitum Meistarardeildar Evrópu í fyrrakvöld fyrir Chelsea svo ljóst er að tímabilið er vonbrigði fyrir þetta magnaða lið.

Heimild: BBC