27.04.12 - 11:54
Magnús Már Einarsson
Tito Vilanova tekur við Barcelona (Staðfest)

Tito Vilanova.

Mynd: Getty Images

Tito Vilanova.

Mynd: Getty Images
Tito Vilanova hefur verið ráðinn þjálfari Barcelona en hann tekur við liðinu af Pep Guardiola eftir tímabilið.
Þetta var staðfest á fréttamannafundi nú rétt í þessu en þar var staðfest að Guardiola muni láta af störfum í sumar.

Vilanova hefur verið aðstoðarmaður Guardiola síðan hann tók við Barcelona árið 2008 en þeir félagar unnu einnig saman hjá B-liði Barcelona tímabilið 2007/2008.
Hinn 42 ára gamli Vilanova mun þreyta frumraun sína sem aðalþjálfari með lið Barcelona.
Vilanova ólst upp hjá Barcelona á sínum tíma og lék með B-liði félagsins en hann náði ekki að leika deildarleik með aðalliðinu. Í kjölfarið lék hann með Figueres, Celta Vigo, Badajoz, Mallorca, Lleida og Elche.
Í ágúst í fyrra komst Vilanova í fréttirnar þegar Jose Mourinho þjálfari Real Madrid potaði í augað á honum í leik um spænska ofurbikarinn. Mourinho var í kjölfarið úrskurðaður í tveggja leikja bann en myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.