27.05.09 - 14:41
Magnús Már Einarsson
Kjartan Ólafsson í markið hjá Stjörnunni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur fengið undanþágu til að fá markvörðinn Kjartan Ólafsson til liðs við sig frá Víkingi R. þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Bjarni Þórður Halldórsson fékk að líta rauða spjaldið gegn FH um síðustu helgi og þá fór hinn 44 ára gamli Baldvin Guðmundsson í markið.
Bjarni Þórður verður í banni gegn Fykli á fimmtudag og þar sem Baldvin er meiddur þurfti Stjarnan að fá nýjan markvörð og þeir hafa núna fengið Kjartan.
Kjartan lék með Víkingi á undirbúningstímabilinu en eftir að Magnús Þormar kom til félagsins hefur hann ekki fengið tækifæri í fyrstu deildinni.
Kjartan var varamarkvörður Víkings í fyrra en hann lék með Berserkjum í þriðju deildinni sumarið 2007.