Fotbolti.net
27.05.18 - 19:58
Sverrir Örn Einarsson

Óli Palli: Spiluðum flottan fótbolta við erfiðar aðstæður

Auglýsing
Óli Palli þjálfari Fjölnis

Óli Palli þjálfari Fjölnis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var glaðbeittur og kátur þjálfari Fjölnis Ólafur Páll Snorrason sem mætti í viðtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir góðann útisigur sinna manna á Víkingi fyrr í dag.
„Við settum á þá tvö góð mörk en ég hefði viljað setja fleiri í fyrri hálfleik til þess mögulega að eiga þægilegri seinni hálfleik en við spiluðum fínan fótbolta við erfiðar aðstæður,\" sagði Óli Palli aðspurður hvað hefði gengið vel í leik Fjölnis í dag

Víkingar sóttu mikið undir lok leiks og náðu að minnka munin undir restina. Kunni Óli Palli skýringar á því hvers vegna hans menn hleyptu Víkingum aftur inn í leikinn?

„Eflaust þreyta, menn búnir að hlaupa mikið á erfiðum velli en við vissum að Víkingur er með mjög stórt og sterkt lið og þeir eru góðir í föstum leikatriðum og löngum boltum inní teiginn sem þeir dældu inn undir lokinn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.