Fotbolti.net
27.07.08 - 07:24
Magnús Már Einarsson

Pascal Chimbonda til Sunderland (Staðfest)

Pascal Chimbonda til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt varnarmanninn Pascal Chimbonda frá Tottenham fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 29 ára gamli Frakki hefur skrifað undir þriggja ára samning við Sunderland.

,,Hann hefur mikla reynslu af ensku úrvalsdeildinni sem getur bara verið gott fyrir okkur,\" sagði Roy Keane stjóri Sunderland hæstánægður.

,,Hann gefur okkur meiri möguleika afast og skapar meiri samkeppni um sæti. Þetta eru frábær kaup,\" bætti Keane við.

Chimbonda er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær frá Tottenham í sumar en fyrr í vikunni kom Teemu Tainio til liðsins frá Spurs.

Einnig er talið að Keane sé á eftir Younes Kaboul og Steed Malbranque leikmönnum Tottenham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.