Fotbolti.net
27.07.08 - 23:26
Magnús Már Einarsson

Bjarni Guðjónsson í KR (Staðfest)

Bjarni Guðjónsson í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KR

Bjarni Guðjónsson skrifaði í kvöld undir fjögurra ára samning við KR en hann kemur til félagsins frá ÍA.
Frá þessu er greint á vefsíðu KR í kvöld en Bjarni verður verður orðinn gjaldgengur með KR þegar liðið leikur við Fjölni á þriðjudag.

Bjarni lék sinn síðasta leik með ÍA í kvöld þegar að liðið tapaði 5-2 gegn FH í Landsbankadeildinni.

Valur og FH höfðu einnig áhuga á Bjarna en á fimmtudag varð ljóst að líklegast væri að þessi sterki miðjumaður myndi ganga í raðir KR.

Nú hefur verið gengið endanlega frá samningum og fékk Bjarni treyju númer 18 hjá KR.

Bjarni er uppalinn hjá ÍA og lék fyrsta með meistaraflokki árið 1995. Tveimur árum síðar fór hann til Newcastle og eftir feril hjá KRC Genk, Stoke City, VfL Bochum, Coventry City og Plymouth Argyle kom Bjarni aftur í raðir ÍA árið 2006.

Síðan þá hefur hann verið lykilmaður hjá Skagamönnum og fyrirliði liðsins.

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.