27.08.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ailton kominn til Austurríkis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Ailton er genginn í raðir SCR Altach í Austurríki.
Frægðarsól Ailton skein hæst tímabilið 2003/2004 þegar hann var markahæstur í þýsku Bundesligunni með Werder Bremen.
Síðan hefur ferill hans legið mikið niður á við og frá árinu 2005 hefur hann verið á mála hjá sjö félögum.
Síðast lék Ailton með Metallurg Donetsk í Úkraínu eftir að hafa verið látinn fara frá Duisburg í janúar.
Nú hefur þessi 35 ára gamli Brasilíumaður hins vegar ákveðið að fara í austurrísku deildina en samningur hans við SCR Altach er til eins árs.

Heimild: AFP