27.08.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Vince Grella til Blackburn Rovers (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur keypt ástralska miðjumanninn Vince Grella frá Torino en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 28 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við Blackburn.
Grella hóf ferilinn hjá Canberra Cosmos í heimalandinu áður en hann fór til Empoli á Ítalíu.
Hann lék síðar með liði Parma áður en hann ákvað að ganga í raðir Torino.
Grella, sem á 36 landsleiki að baki, gæti leikið sinn fyrsta leik með Blackburn á laugardag en liðið mætir þá West Ham.

Heimild: BBC