Fotbolti.net
27.08.08 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Anton Ferdinand til Sunderland (Staðfest)

Anton Ferdinand til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt varnarmanninn Anton Ferdinand frá West Ham á um það bil átta milljónir punda.
Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Sunderland en hann er níundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.

Áður hafði Roy Keane stjóri Sunderland krækt í Teemu Tainio, Steed Malbranque, Pascal Chimbonda, Nick Colgan, David Meyler, El-Hadji Diouf, David Healy og Djibril Cisse.

,,Það var erfitt að yfirgefa West Ham því ég hef verið þar síðan ég var 16 ára,\" sagði Ferdinand.

,,Þetta er hins vegar frábær áskorun fyrir mig og ég finn að það eru spennandi tímar hjá Sunderland. Ég tel að þessi skipti séu góð fyrir mig,\" bætti Ferdinand við en hann mun berjast við Nyron Nosworthy, Danny Collins og Danny Higginbotham um stöðu í vörninni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.