Fotbolti.net
27.08.08 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Lee Young-pyo til Borussia Dortmund (Staðfest)

Lee Young-pyo til Borussia Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lee Young-pyo hefur yfirgefið Tottenham og gert eins árs samning við Borussia Dortmund.
,,Við óskum Young-pyo alls hins besta í framtíðinni,\" sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Tottenham.

Young-pyo er varnarmaður frá Suður-Kóreu en hann hefur verið undanfarin þrjú ár í herbúðum Tottenham.

Á ferli sínum hjá Tottenham lék Young-pyo alls 93 leiki í öllum keppnum.

Hann hefur fallið neðar í goggunarröðinni hjá liðinu að undanförnu en meiðsli settu einnig strik í reikninginn hjá leikmanninum sem ákvað í kjölfarið að fara til Dortmund.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.