Liverpool ætlar ekki að leyfa framherjanum unga Bobby Duncan að fara frá félaginu þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum.
Hinn 18 ára gamli Bobby þykir mikið efni en hann er frændi Steven Gerrard fyrrum fyrirliða Liverpool.
Danska félagið Nordsjælland reyndi að krækja í Bobby á dögunum og í vikunni kom tilboð frá Fiorentina sem ku hafa hljóða upp á 1,6 milljón punda.

Liverpool lítur svo á að tilboð Fiorentina hafi verið niðrandi og gjörsamlega óraunhæft.
Duncan kom til Liverpool frá Manchester City í fyrra en hann spilar með U23 ára liði félagsins á komandi tímabili.
Athugasemdir