Fotbolti.net
27.09.08 - 14:00
Fótbolti.net

Theódór Sveinjónsson hættur með Fjölni (Staðfest)

Theódór er hættur með Fjölni

Theódór er hættur með Fjölni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Theódór Sveinjónsson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni sagði upp störfum hjá félaginu í dag en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Theódór tók við Fjölnisliðinu þann 1.febrúar eftir að Andrés Ellert Ólafsson hætti með liðið rétt rúmlega fjórum mánuðum fyrir Íslandsmótið. Theódór var þá jafnframt að þjálfa 2.flokk karla og 3 flokk kvenna á sama tíma hjá félaginu.

Fjölnir endaði í tíunda og neðsta sæti Landsbankadeildar kvenna með 8 stig og féll þar af leiðandi niður í 1.deild. Það er því óljóst hvaða þjálfari fær það verðuga verkefni að koma liðinu aftur á meðal þeirra bestu.

Við hringdum í Theódór og spurðum hann um ástæður uppsagnarinnar.

,, Ég rifti samningnum daginn eftir fund með stjórninni á grundvelli þess að mér fannst stjórn Fjölnis ekki hafa trú né traust á mér sem þjálfara og ég vill ekki vinna undir slíku“sagði Theódór.

Theódór sagðist hvergi nærri vera hættur þjálfun og ætlar sér að finna annað félag og hefja störf þar.

\"Ég mun að sjálfsögðu halda áfram í þjálfun og ætla að finna mér gott félag til þess að vinna hjá, Það eru fullt af góðum liðum sem vantar þjálfara og hafa trú á mér og því sem ég er að gera.\" sagði Theódór Sveinjónsson fyrrverandi þjálfari Fjölnis að lokum við Fótbolta.net
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.