Fotbolti.net
27.10.08 - 20:57
Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs í Val (Staðfest)

Jeffs í leik með Fylki í sumar.

Jeffs í leik með Fylki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enski miðjumaðurinn Ian Jeffs er genginn í raðir Vals en þetta var staðfest á vefsíðu félagsins nú í kvöld. Jeffs kemur til félagsins frá Fylki þar sem hann lék í sumar en þar hafði hann gert þriggja ára samning í janúar.
Ian Jeffs er 25 ára gamall Englendingur sem var lánaður frá Örebro til ÍBV á síðari hluta Íslandsmótsins í fyrrasumar. Hann var frábær með liðinu í 1. deildinni og skoraði níu mörk í þeim 11 leikjum sem hann lék í sumar þrátt fyrir að vera miðvallarleikmaður og var markahæsti leikmaður liðsins. Hann var svo valinn í lið ársins í 1. deildinni í vali fyrirliða og þjálfara sem Fótbolti.net stóð fyrir.

Hann fór svo til Fylkis í janúar á þessu ári og lék 18 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk, auk eins marks í fjórum bikarleikjum.

Jeffs sem er 25 ára Englendingur lék með ÍBV 2003, 2004 og 2005 eftir að hafa verið á mála hjá Crewe Alexandra í heimalandinu.

Hann gekk til liðs við Örebro eftir tímabilið 2005 og hjálpaði sænska liðinu að komast upp í efstu deild. Jeffs fékk fá tækifæri hjá liðinu á síðasta ári og gekk þá til liðs við ÍBV á lánssamningi út tímabilið.

Heimild: Vefsíða Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.