Fotbolti.net
27.11.08 - 18:29
Magnús Már Einarsson

Knútur Rúnar og Elvar Freyr í Víking R. (Staðfest)

Frá vinstri: Jón Steinar Ágústsson, Elvar Freyr Arnþórsson, Skúli Sigurðsson, Knútur Rúnar Jónsson, Kjartan Dige Baldursson.  Fyrir ofan þá eru Leifur Garðarsson þjálfari og Heimir Gunnlaugsson stjórnarmaður.

Frá vinstri: Jón Steinar Ágústsson, Elvar Freyr Arnþórsson, Skúli Sigurðsson, Knútur Rúnar Jónsson, Kjartan Dige Baldursson. Fyrir ofan þá eru Leifur Garðarsson þjálfari og Heimir Gunnlaugsson stjórnarmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knútur Rúnar Jónsson og Elvar Freyr Arnþórsson skrifuðu nú síðdegis undir tveggja ára samning við Víking Reykjavík.
Knútur Rúnar var fyrirliði Víðis í sumar en hann hefur leikið með liðinu síðan 2001. Í sumar lék Knútur mjög vel, skoraði tólf mörk í tuttugu leikjum í annarri deildinni og var í liði ársins í vali fyrirliða og þjálfara.

Elvar Freyr er tvítugur miðju og sóknarmaður en skoraði fimm mörk í sautján leikjum með Stjörnunni í fyrstu deildinni í fyrra.

Í sumar átti Elvar Freyr við meiðsli að stríða en hann lék sex leiki með KFG í þriðju deildinni og skoraði þrjú mörk. Elvar á að baki landsleiki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslendinga.

Með þessum samningum hafa Víkingar fengi þrjá leikmenn síðan að tímabilinu lauk en Grétar Ali Kahn kom einnig til félagsins frá Gróttu á dögunum.

Nú síðdegis skrifuðu einnig þrír ungir leikmenn undir samning við Víking en allir eru þeir uppaldir hjá félaginu. Jón Steinar Ágústsson gerði tveggja ára samning en hann skoraði sjö mörk fyrir Berserki í þriðju deildinni síðastliðið sumar.

Kjartan Dige Baldursson gerði þriggja ára samning en hann hefur leikið með Berserki og öðrum flokki undanfarin tvö ár. Skúli Sigurðsson gerði einnig þriggja ára samning en hann er markvörður í öðrum flokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.