Fotbolti.net
27.11.09 - 15:51
Magnús Már Einarsson

Finnur Ólafsson til ÍBV (Staðfest)

Finnur Ólafsson til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fréttir/Vestmanneyjum

ÍBV hefur fengið miðjumanninn Finn Ólafsson til liðs við sig frá HK en hann skrifaði undir samning við félagið í Vestmannaeyjum í dag.
Eins og Fótbolti.net greindi frá á dögunum þá átti Finnur einnig í viðræðum við Stjörnuna en hann ákvað að semja við ÍBV.

,,Finnur er flottur spilari, grimmur strákur og flottur karakter. Það er svolítið það sem við erum að leita að,\" sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net í dag.

Finnur er uppalinn hjá HK en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið alla sína tíð með félaginu.

Í sumar skoraði hann tvö mörk í sex leikjum í fyrstu deildinni en hann missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.