Fotbolti.net
27.12.04 - 16:08
Elvar Geir Magnússon

Bojan Djordjic til Glasgow Rangers (Staðfest)

Bojan Djordjic til Glasgow Rangers (Staðfest)
Canon
Skoska liðið Glasgow Rangers hefur keypt vængmanninn Bojan Djordjic frá Manchester United. Þessi 22 ára leikmaður var til reynslu á Ibrox og hefur nú undirritað samning út þetta leiktímabil með möguleika á tveimur árum þar til viðbótar.
Djordjic er með sænskan ríkisborgararétt en hans fyrsti leikur verður bikarleikur gegn Celtic þann 9.janúar. Hann var keyptur til United árið 1999 frá Brommapojkarna og var hann nefndur sem framtíðarstjarna í liðinu. Hlutirnir hafa þó ekki þróast eins og vonast var eftir.

Stóran hluta af ferli sínum í Manchester eyddi Djordjic á láni hjá Aarhus, Sheffield Wednesday og Crvena Zvezda. Hann lék aðeins tvo aðalliðsleiki fyrir United, kom inn sem varamaður í leik gegn Tottenham í deildinni 2001 og síðar það ár lék hann í deildabikarnum gegn Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.