Fotbolti.net
28.03.12 - 13:19
Magnús Már Einarsson

Hannes Þór til Brann á láni (Staðfest)

Hannes fagnar Íslandsmeistaratitlinum síðasta sumar í fangi Bjarna Guðjónssonar.

Hannes fagnar Íslandsmeistaratitlinum síðasta sumar í fangi Bjarna Guðjónssonar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Norska félagið Brann hefur gengið frá samningi um að fá Hannes Þór Halldórsson markvörð KR á láni fram í byrjun maí en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Brann er í markmannvandræðum en Piotr Leciejewski meiddist gegn Rosenborg í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar um helgina. Varamarkvörðurinn Jørgen Mohus er einnig meiddur og því þurfti hinn 17 ára gamli Øystein Øvretveit að fara í markið um helgina.

Hannes fær nú það verkefni að standa á milli stanganna hjá Brann í næstu leikjum en hann heldur til Noregs í dag og mætir á sína fyrstu æfingu á morgun.

Ef ekkert óvænt kemur upp mun Hannes síðan leika sinn fyrsta leik með Brann þegar liðið leikur við Steinþór Frey Þorsteinsson og félaga í Sandnes Ulf um helgina.

Hannes sló í gegn á sínu fyrsta tímabili með KR í fyrra en hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins.

Lánssamningurinn gildir fram í byrjun maí en reiknað er með að Hannes leiki með Brann í fyrstu umferð norska bikarsins þann 1. maí áður en hann fer aftur til Íslands. Því verður Hannes með KR-ingum þegar liðið mætir Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar þann 6. maí næstkomandi.

Heimild: Heimasíða Brann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.