banner
   þri 28. mars 2023 11:40
Elvar Geir Magnússon
Tíu verðmætustu leikmenn heims - Tveir úr ensku deildinni
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins, er verðmætasti leikmaður heims samkvæmt lista Football Benchmark.

Erling Haaland, leikmaður Manchester City og norska landsliðsins, er í öðru sæti listans en hann er aðeins annar af tveimur leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar á topp tíu. Hinn er liðsfélagi hans Phil Foden sem situr í fimmta sæti.

Þriðji á listanum er Jude Bellingham hjá Borussia Dortmund og Vinicius Jr hjá Real Madrid er í fjórða sæti listans.

Jamal Musiala hjá Bayern München er í sjötta sæti og þar fyrir aftan koma Barcelona vinirnir Gavi og Pedri.

Tíu verðmætustu leikmenn heims
Kylian Mbappe - £176m
Erling Haaland - £160m
Jude Bellingham - £133m
Vinicius Jr - £124m
Phil Foden - £122m
Jamal Musiala - £119m
Gavi - £118m
Pedri - £114m
Federico Valverde - £100m
Aurelien Tchouameni - £89m
Athugasemdir
banner
banner
banner