28.04.12 - 13:25
Hafliði Breiðfjörð
Marko Marin gengur til liðs við Chelsea (Staðfest)

Marko Marin í baráttu við Birki Bjarnason í U21 árs landsleik.

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti á vef sínum í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við þýska félagið Werder Bremen um kaup á Marko Marin leikmanni liðsins.
Chelsea segist hafa náð samkomulagi um kaupverð á þessum 23 ára gamla leikmanni sem hefur þegar samþykkt samning um kaup og kjör við enska félagið.
Ekki er gefið upp hvert kaupverðið á Marin verður þegar hann kemur til Chelsea í sumar.
Hann er þýskur landsliðsmaður sem getur spilað á báðum köntum og fremst á miðjunni. Hann spilaði tvo leiki fyrir Þýskaland á Heimsmeistaramótinu árið 2010.
Hann hóf feril sinn hjá Borussia Mönchengladbach og fór til Bremen fyrir 6,8 milljónir punda sumarið 2009.

Heimild: Vefur Chelsea