Fotbolti.net
28.04.12 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson

Jóhannes Karl Guðjónsson til ÍA (Staðfest)

Jóhannes Karl Guðjónsson til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jóhannes Karl Guðjónsson skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við ÍA á Akranesi, en hann snýr aftur til félagsins eftir fjórtán ára fjarveru.
Jóhannes Karl, sem er 31 árs gamall miðvallarleikmaður skrifaði í síðustu viku undir starfslokasamning við Huddersfield Town, þar sem hann hefur leikið síðustu tvö ár eða frá árinu 2010.

Hann gerði þriggja ára samning við Skagamenn í kvöld, en þetta var tilkynnt á Sjávarréttarkvöldi félagsins. Hann verður því mikill liðsstyrkur fyrir ÍA í sumar sem er spáð ofarlega, eftir að hafa unnið fyrstu deildina síðasta sumar.

Hann hefur verið í atvinnumennskunni síðustu fjórtán árin, en hann gekk einmitt til liðs við Racing Genk í Belgíu árið 1998 frá ÍA. Hann lék fimm leiki þar áður en hann var lánaður til MVV Maastricht í hollensku úrvalsdeildinni.

Eftir tíma sinn þar gekk hann til liðs við RKC Waalwijk í Hollandi og því næst til Real Betis á Spáni þar sem hann lék tólf leiki á tveimur tímabilum. Á meðan hann var samningsbundinn Betis þá var hann lánaður tvívegis í ensku úrvalsdeildina, þá fyrst til Aston Villa og síðar til Wolverhampton Wanderers.

Árið 2006 samdi hann svo við Leicester City, en þar lék hann 77 leiki og skoraði 10 mörk á tveimur árum sínum hjá félaginu. Hann var keyptur til AZ Alkmaar árið 2006, en tókst einunigs að leika fimm leiki þar og yfirgaf félagið eftir tímabilið.

Hann samdi við Burnley árið 2007 og lék þar 88 leiki og skoraði sjö mörk. Hann lék með liðinu í þrjú ár áður en hann samdi við Huddersfield árið 2010.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.