Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 28. maí 2020 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristófer Reyes spilar í Ólafsvík í sumar
Kristófer í leik með Ólsurum síðasta sumar.
Kristófer í leik með Ólsurum síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes mun í sumar spila með Víkingi Ólafsvík. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.

Kristófer æfði fyrr á þessu ári með ADT, sem er á félagslið á Filippseyjum. Þjálfari liðsins er landsliðsþjálfari Filippseyja og er félagið rekið af knattspyrnusambandinu í landinu.

Kristófer, sem er 22 ára, á föður frá Filippseyjum og hefur hann æft með landsliðinu þar í landi. Ray Anthony Jónsson, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur, spilaði með landsliði Filippseyja og fyrir hans tilstuðlan fór Kristófer til æfinga hjá landsliðinu.

Nú er hins vegar ljóst að Kristófer spilar á Íslandi í sumar þar sem mikil óvissa er með mótahald á Filippseyjum vegna kórónuveirufaraldursins. Kristófer verður hann áfram í herbúðum Víkings Ólafsvíkur, sem leikur í 1. deild.

Kristófer lék 11 leiki með Víkingi Ólafsvík í 1. deildinni síðasta sumar. Hann hefur einnig verið á mála hjá Fram hér á landi, en á síðasta ári fór hann til Taílands og var þar hjá úrvalsdeildarfélaginu Ratchaburi Mitr Phol.

Víkingur Ó.:

Komnir:
Billy Stedman frá Englandi
Brynjar Atli Bragason frá Breiðabliki (lán)
Daníel Snorri Guðlaugsson frá Haukum
Indriði Áki Þorláksson frá Kára
Gonzalo Zamorano Leon frá ÍA
Kristófer Daði Kristjánsson frá Sindra

Farnir:
Abdul Bangura í Sindra
Franko Lalic í Þrótt R.
Grétar Snær Gunnarsson í Fjölni
Guðmundur Magnússon í ÍBV (var á láni)
Harley Willard í Fylki
Martin Kuittinen*
Miha Vidmar til Slóveníu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner