Fotbolti.net
28.07.08 - 10:26
Hörður Snævar Jónsson

HK fær tvo erlenda varnarmenn (Staðfest)

HK fær tvo erlenda varnarmenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

HK hefur bætt tveimur erlendum leikmönnum í hóp sinn fyrir lokasprettinn í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Þeir eru Erdzan Beciri frá Slóveníu og Benis Krasniqi frá Kósóvó.
Beciri er 23 ára og hefur leikið í efstu deild í Slóveníu og Póllandi og í næstefstu deild í Ungverjalandi, síðast með Ivancna Gorica í Slóveníu. Hann á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Slóveníu, síðast með 21 árs landsliðinu.

Krasniqi er 27 ára og hefur spilað nokkra óopinbera landsleiki með Kósóvó, sem er nýbúið að fá sjálfstæði frá Serbíu. Hann er frá Besa, sem hefur orðið meistari í Kósóvó þrisvar á síðustu fjórum árum.

HK missti í síðustu viku Hermann Geir Þórsson og áður hafði liðið misst Hólmar Örn Eyjólfsson.

Þessir leikmen verða ekki með í kvöld en ættu að líkindum að ná næsta leik gegn Keflavík.

,,Þetta eru hörkugóðir leikmenn, þeir hafa sýnt það á æfingunum með okkur, og eiga eftir að styrkja okkur í baráttunni það sem eftir er sumars,\" sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari HK við heimasíðu félagsins.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.