28.07.08 - 16:34
Guðmundur Dagur Ólafsson
Riga Mustapha til Bolton (Staðfest)

Mustapha, til hægri, er farinn til Bolton

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers hafa gengið frá kaupum á hollenska miðjumanninum Riga Mustapha frá spænska félaginu Levante.
Mustapha skrifar undir þriggja ára samning við Bolton en hann gekk til liðs við Levante frá Sparta fyrir þremur árum.
Hann hefur ekki fengið greidd launin sín í nokkra mánuði og ákvað að yfirgefa félagið eftir að það féll úr efstu deild á síðustu leiktíð.
Mustapha segir að þó nokkur lið hafi viljað fá sig til sín en hann hafi verið spenntastur fyrir að fá að spreyta sig í ensku Úrvalsdeildinni.
„Real Mallorca og Racing Santander vildu fá mig og líka Olympiakos sem voru mjög spenntir en Úrvalsdeildin hefur alltaf verið draumurinn,\" sagði Mustapha.

Heimild: Sky Sports