Fotbolti.net
28.07.08 - 17:10
Hörður Snævar Jónsson

El Hadji Diouf til Sunderland (Staðfest)

El Hadji Diouf til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fest kaup á El Hadji Diouf frá Bolton en gengið var frá félagaskiptum hans fyrir stundu.
Diouf skrifaði undir fjögurra ára samning við Sunderland en kaupverðið er ekki gefið upp.

Diouf sem er frá Senegal gekk í raðir Bolton árið 2005 frá Liverpool en hann vildi fara frá Bolton.

Kaupverðið er talið vera 2,5 milljónir punda en Roy Keane stjóri Sunderland hefur verið að styrkja hóp sinn að undanförnu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.