Fotbolti.net
28.07.08 - 17:56
Hafliði Breiðfjörð

Robbie Keane til Liverpool (Staðfest)

Robbie Keane til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Robbie Keane hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool en þetta var staðfest á opinberri vefsíðu félagsins nú undir kvöld. Hann er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sumar, áður höfðu komið þeir David Ngog, Diego Cavalieri, Philipp Degen og Andrea Dossena.
Hann fór í læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði svo í kjölfarið undir samninginn til fjögurra ára, fjórtán árum eftir að hann hafnaði þessu félagi sem hann studdi sem barn til að ganga í raðir Wolves.

Hann hóf ferilinn hjá Crumlin United í Dublin áður en hann gekk í raðir Wolves þar sem hann kom upp í meistaraflokinn sem unglingur árið 1997. Þaðan var hann seldur til Coventry sem var í efstu deild þar til Marcello Lippi þáverandi stjóri Inter Milan keypti hann á 13 milljónir punda árið 2000.

Þar lék Keane með Ronaldo og Christian Vieri í framlínu Inter en lítið varð úr ferli hans þar því Lippi var rekinn ekki löngu síðar. Því var hann lánaður til Leeds árið 2000 og gerði endanlegan samning við félagið hálfu ári síðar.

Hann yfirgaf Leeds svo í kjölfar fjárhagsvandræða félagsins árið 2002 og var seldur á 7 milljóinir punda til Totttenham þar sem hann var þar til hann kemur nú til Liverpool.

Hann skoraði 107 mörk í 253 leikjum hjá Tottenham og var í miklu uppáhaldi stuðningsmanna félagsins. Hann er 28 ára gamall.

Heimild: Opinber vefsíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.