28.08.08 - 13:49
Hafliði Breiðfjörð
Shaun Wright Phillips til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Shaun Wright-Phillips er genginn í raðir Manchester City að nýju frá Chelsea en þetta var staðfest á vefsíðu City nú í dag. Hann skrifaði undir samning við félagið eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun í morgun. Samningurinn er til fjögurra ára en kaupverð er ekki gefið upp.
Wright-Phillips var hjá Chelsea undanfarin þrjú ár en snýr nú aftur til félagsins þar sem hann hóf feril sinn.
,,Auðvitað er ég hæstánægður með að vera kominn til City og get ekki beðið eftir að byrja að nýju.\"
Mark Hughes stjóri liðsins bætti við: ,,Ég hef alltaf hrifist af honum og hann hefur verið á óskalista mínum síðan ég kom til félagsins.\"
,,Að ná samningi um að fá Shaun aftur heim er frábært fyrir okkur og ég er viss um að stuðningsmennirnir verða eins spenntir og við erum að fá hann til Manchester City.

Heimild: Vefsíða Man City