28.08.08 - 17:07
Hörður Snævar Jónsson
Moritz Volz til Ipswich á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ipswich Town hefur fengið Mortiz Volz á láni frá Fulham út þessa leiktíð.
Þessi 25 ára gamli leikmaður verður í leikmannahópi liðsins fyrir leik liðsins gegn Wattford á laugardag.
Volz hefur leikið 144 leiki fyrir Fulham en hefur ekki leikið neitt með liðinu á þessari leiktíð.
,,Ég held að þetta sé gott fyrir Moritz, hann hefur ekki fengið mörg tækifæri,\" sagði Roy Hodgson stjóri Fulham.
,,Þegar hann fær tækifæri til að spila með Ipswich þá hefði verið rangt hjá okkur að stoppa það.\"

Heimild: BBC