28.08.10 - 10:12
Magnús Már Einarsson
Benjani til Blackburn (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Blackburn hefur samið við Benjani Mwaruwari fyrrum framherja Manchester City.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur æft með Blackburn að undanförnu en hann kemur frítt til félagsins frá Manchester City.
Benjani skrifaði undir eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Benjani, sem er frá Zimbabwe, hefur einnig leikið með Portsmouth og Sunderland á Englandi.
Benjani skrifaði undir eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Benjani, sem er frá Zimbabwe, hefur einnig leikið með Portsmouth og Sunderland á Englandi.
Heimild: BBC
