28.08.10 - 13:26
Alexander Freyr Tamimi
Hatem Ben Arfa í Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk í formi franska landsliðsmannsins Hatem Ben Arfa, en hann verður á láni á St. James\' Park út tímabilið til að byrja með.
Þessi 23 ára leikmaður Marseille mun klæðast treyju númer 37 hjá Newcastle, en hann hefur undanfarnar vikur lýst því yfir að hann vilji yfirgefa Frakkland og halda til Newcastle. Nú hefur honum orðið að ósk sinni.
„Það var alltaf minn fyrsti kostur að koma hingað og ég er himinlifandi með að það hafi loksins gerst,\" sagði Ben Arfa eftir að hann skrifaði undir hjá Newcastle.
„Ég hef kynnt mér vel sögu félagsins og þá frábæru leikmenn sem hafa spilað hérna og ég hlakka til að sýna stuðningsmönnum Newcastle hæfileika mína.\"
„Ég get ekki beðið eftir því að sýna hvað í mér býr fyrir framan stuðningsmenn Newcastle. Margir vina minna í Frakklandi þekkja þegar orðspor stuðningsmannanna hérna. Andrúmsloftið á leikvanginum er einstakt.\"

Heimild: Vefur Newcastle