Fotbolti.net
28.08.10 - 14:29
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Nicolas Burdisso til Roma (Staðfest)

Nicolas Burdisso til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Nicolas Burdisso er genginn í raðir Roma fyrir 8 milljónir evra. Burdisso skrifaði undir fjögurra ára samning.

Burdisso kemur frá Inter en hann lék allt síðasta tímabil á láni með Roma og er búinn að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður þar.
Daniele Prade, yfirmaður íþróttamála hjá Roma, var í Mílanó á föstudaginn til að ljúka samningaviðræðunum. Burdisso fær 3.8 milljónir evra fyrir fyrsta tímabilið sitt en svo mun hann fá 4,5 milljónir fyrir hvert af hinum þremur árunum af samningnum.

Tilkynning á opinberri vefsíðu félagsins segir: ,,AS Roma S.p.A tilkynnir að viðræðum við Inter um kaup á Nicolas Burdisso hefur verið lokið.\"

,,8 milljónir evra munu fara til Inter sem kaupverð.\"


Til gamans má geta að bróðir Burdisso er einnig í Roma en hann heitir Guillermo Burdisso og er 22 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.