Fotbolti.net
28.08.10 - 21:03
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Zlatan Ibrahimovic til AC Milan á láni (Staðfest)

Zlatan Ibrahimovic

Zlatan Ibrahimovic

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur fengið Zlatan Ibramhimovic á láni frá Barcelona út þessa leiktíð.
Zlatan, sem er 28 ára gamall framherji getur svo verið keyptur eftir tímabilið á 24. milljónir evra.

Hann fer í læknisskoðun hjá Milan á mánudaginn til þess að klára kaupin, en tækifæri hans hjá Barcelona hefðu verið fá hefði hann verið áfram enda tryggði spænska liðið sér þjónustu David Villa fyrir tímabilið.

Zlatan þekkir þó vel til í ítölsku deildinni, en hann hefur bæði spilað með Juventus og Inter Milan við góðan orðstír þar sem hann varð meðal annars markakóngur tímabilið 2008-2009 ásamt því að vera besti leikmaður deildarinnar tvö tímabil í röð.

,,Ég er mjög ánægður, allt hefur verið leyst á góðum nótum. Nú kem ég aftur til Mílanó nema með öðru liði,\" sagði Zlatan.

,,Þetta er mikilvægt lið með frábæra hefð. Sóknarleikurinn er flottur og ég vonast eftir því að vinna Meistaradeildina og alla titla með liðinu,\" sagði hann að lokum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.