Fotbolti.net
28.10.08 - 13:31
Magnús Már Einarsson

Tony Adams ráðinn stjóri Portsmouth (Staðfest)

Tony Adams ráðinn stjóri Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tony Adams hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Portsmouth en hann tekur við liðinu af Harry Redknapp sem var ráðinn stjóri Tottenham á laugardaginn.
Adams, sem er 42 ára, hafði verið aðstoðarmaður Redknapp hjá Portsmouth. Adams og Joe Jordan stýrðu síðan Portsmouth gegn Fulham í fyrradag.

Adams, sem er fyrrum fyrirliði Arsenal og enska landsliðsins, stýrði Wycombe á sínum tíma og þá var hann í þjálfaraliði Feyenoord og Utrecht.

Árið 2006 var Adams síðan ráðinn aðstoðarmaður Redknapp hjá Portsmouth.

Sam Allardyce fyrrum stjóri Bolton og Newcastle og Avram Grant fyrrum stjóri Chelsea höfðu einnig verið orðaðir við stjórastöðuna hjá Portsmouth en nú hefur Adams verið ráðinn.

Hann mun stýra Portsmouth annað kvöld en þá sækir liðið Liverpool heim í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.