Fotbolti.net
28.10.08 - 18:59
Magnús Már Einarsson

Gunnlaugur Jónsson tekur við Selfyssingum (Staðfest)

Tómas Þóroddsson, tæknilegur ráðgjafi Selfossliðsins og Gunnlaugur Jónsson, þjálfari.

Tómas Þóroddsson, tæknilegur ráðgjafi Selfossliðsins og Gunnlaugur Jónsson, þjálfari.

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari Selfyssinga en hann mun einnig leika með liðinu í fyrstu deildinni næsta sumar. Gunnlaugur skrifaði undir samning við félagið nú undir kvöld.
Gunnlaugur hefur leikið með KR undanfarin þrjú ár en hann samningur hans við Vesturbæjarfélagið klárast um áramótin.

Í sumar átti Gunnlaugur við meiðsli að stríða en hann lék alls tíu leiki í Landsbankadeildinni með KR. Áður en hann kom til KR var Gunnlaugur lykilmaður í liði ÍA í mörg ár.

Gunnlaugur tekur við Selfyssingum af Zoran Miljkovic sem hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár. Zoran kom Selfyssingum upp í fyrstu deild í fyrra og gerði einnig góða hluti með liðið í sumar.

Selfyssingar voru í harðri keppni um sæti í Landsbankadeildinni í sumar en enduðu að lokum í þriðja sæti fyrstu deildarinnar.

Við þetta sama tækifæri skrifuðu þeir Ómar Valdimarsson aðstoðarþjálfari, Trausti Hrafnsson sjúkraþjálfari og Halldór Björnsson markmannsþjálfari undir nýja samninga. Gunnlaugur verður spilandi þjálfari og mun hlutverk Ómars Valdimarssonar því aukast, en Ómar hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Zoran í eitt og hálft ár.

Heimild: Vefsíða Selfoss

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.