Fotbolti.net
28.11.09 - 08:36
Hafliði Breiðfjörð

Elísabet Ester í KR (Staðfest)

Elísabet Ester í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Vefur KR

Kvennaboltinn
KR heldur áfram að styrkja kvennalið sitt fyrir baráttuna í Pepsi-deildinni næsta sumar því í gær varð Elísabet Ester Sævarsdóttir þriðji leikmaðurinn til að ganga til liðs við félagið í vikunni.
Elísabet Ester kemur frá Keflavík þar sem hún hefur leikið undanfarin ár. Hún er 21 árs gömul og lék 11 leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn árið 2003 með RKV sem var sameinað lið Reynis, Keflavíkur og Víðis. Frá árinu 2004 hefur hún svo leikið með Keflavík en hún á að baki 90 leiki í deild og bikar.

Fyrr í vikunni hafði KR tilkynnt að Harpa Ásgeirsdóttir væri komin til félagsins frá Völsungi og Margrét Þórólfsdóttir frá Aftureldingu.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.