Fotbolti.net
28.12.09 - 19:36
Hafliði Breiðfjörð

Sinama Pongolle til Sporting Lisbon (Staðfest)

Florent Sinama Pongolle.

Florent Sinama Pongolle.

Canon

Mynd: Getty Images

Sporting Lisbon í Portúgal staðfesti í dag að félagið hafi gengið frá 6,5 milljón punda kaupum á Frakkanum Florent Simana-Pongolle sem kemur til félagsins frá Atletico Madrid.
Félagið sagðist greiða eina milljón evra til viðbótar í frammistöðu bónusa en leikmaðurinn semur svo við félagið til ársins 2013.

Sinama Pongolle sem er 25 ára gamall hóf feril sinn hjá Le Havre í Frakklandi en fór þaðan til Liverpool þar sem hann var í nokkur ár áður en hann fór til Atletico Madrid í júlí 2008.

Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Atletico enda einoka stórstjörnurnar Diego Forlan og Sergio Aguero framherjastöðurnar.

Sporting vonast til að með tilkomu Sinama Pongolle aukist titilvonir liðsins sem er í fimmta sæti deildarinnar, 12 stigum á eftir toppliðum Sporting Braga og Benfica.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.