Fotbolti.net
29.04.09 - 12:13
Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór Rúnarsson í Þrótt (Staðfest)

Davíð Þór Rúnarsson.

Davíð Þór Rúnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson

Þróttarar fengu í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Pepsi-deild karla þegar framherjinn Davíið Þór Rúnarsson gekk til liðs við félagið frá Fjölni. Þetta var staðfest á vef stuðningsmanna félagsins, Köttarar.net.
Davíð Þór Rúnarsson er 31 árs framherji sem hefur leikið með Fjölni undanfarin tvö sumur.

Hann lék 17 leiki fyrir liðið í Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði í þeim þrjú mörk, öll undir lok mótsins. Auk þess lék hann fjóra leiki í VISA-bikarnum í fyrrasumar.

Hann hefur í heildina leikið 35 leiki í efstu deild og skorað í þeim sjö mörk.

Áður en hann kom til Fjölnis hafði hann leikið með Víkingum í tvö ár en þar áður með Fjölni og Tindastóli auk Neista og Hvöt.

Heimild: Köttarar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.