Fotbolti.net
29.04.09 - 18:03
Hafliði Breiðfjörð

Magnús Þormar í Víking frá Keflavík (Staðfest)

Magnús Þormar í í bikarúrslitaleiknum 2004 með Keflavík.

Magnús Þormar í í bikarúrslitaleiknum 2004 með Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Þormar markvörður Keflavíkur gekk í dag í raðir Víkinga og gerði tveggja ára samning við félagið. Frá þessu var greint á vef stuðningsmanna félagsins, Víkingur.net.
Magnús Þormar var aðalmarkvörður Keflavíkur eftir að ljóst var að Ómar Jóhannsson yrði frá út tímabilið vegna meiðsla. Keflavík fékk hinsvegar danska markvörðinn Lasse Jörgensen til liðs við sig í síðustu viku og hann mun verja mark liðsins í sumar.

Magnús Þormar er 24 ára gamall markvörður sem gerði nýjan tveggja ára samning við Keflavík í mars.

Magnús er uppalinn hjá Keflavík og lék fyrst með meistaraflokki liðsins árið 2003. Hann hefur einnig leikið með Stjörnunni og Grindavík en sneri aftur heim í heiðardalinn síðasta sumar.

Magnús á að baki 10 deildarleiki, 5 bikarleiki og einn Evrópuleik fyrir Keflavík og var í marki liðsins þegar það varð bikarmeistari árið 2004. Þá hefur hann leikið með U-21 árs landsliði Íslands.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.