The Guardian segir frá því í dag að Liverpool sé ennþá með Timo Werner, sóknarmann RB Leipzig, á óskalista sínum. Liverpool hefur ekki lagt fram formlegt tilboð í hinn 24 ára gamla Werner en áhuginn er mikill.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ku hafa sagt við stjórn félagsins í vikunni að hann telji Werner fullkominn kost fyrir lið sitt.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ku hafa sagt við stjórn félagsins í vikunni að hann telji Werner fullkominn kost fyrir lið sitt.
Til 15. júní næstkomandi er Werner með riftunarverð í samningi sínum upp á 52,7 milljónir punda.
Vegna kórónaveirunnar vill Liverpool ekki borga svo mikið og því er líklegt að félagið reyni að fara í viðræður við RB Leipzig.
Inter hefur sýnt Werner áhuga en leikmaðurinn vill sjálfur bíða og sjá hvað verður með Liverpool áður en hann tekur ákvörðun.
Athugasemdir