29.07.08 - 09:42
Magnús Már Einarsson
Heimir Snær í Fjölni (Staðfest)

Heimir í leik með Fjölni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir í leik með Fjölni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir hefur fengið miðjumanninn Heimi Snæ Guðmundsson frá FH.
Heimir Snær fékk fyrr í mánuðinum leyfi frá FH til að finna sér nýtt félag. Nokkur félög sýndu Heimi áhuga en þessi 24 ára gamli leikmaður ákvað að fara í Fjölni.
Hann lék með Fjölni á láni frá FH á síðustu leiktíð og stóð sig mjög vel þar. Hann lék 16 leiki í 1. deildinni með liðinu og fjóra í bikarnum. Hann lék oftast sem miðjumaður en átti einnig mjög góða leiki sem miðvörður.
Heimir var samningslaus frá FH í lok síðustu leiktíðar en ákvað að tímabilinu loknu að gera tveggja ára samning við félagið.
Hann hefur lítið fengið tækifæri með FH í sumar og aðeins komið inná sem varamaður í tveimur leikjum.
Heimir er kominn með leikheimild með Fjölni og gæti verið í leikmannahópi liðsins gegn KR í Landsbankadeildinni í kvöld.