Fotbolti.net
29.07.08 - 12:01
Magnús Már Einarsson

Anthony Gardner til Hull á láni (Staðfest)

Anthony Gardner til Hull á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur fengið varnarmanninn Anthony Gardner á láni frá Tottenham en samningurinn gildir þar til í janúar.
Þessi 27 ára gamli miðvörður var í láni hjá Everton síðari hluta síðustu leiktíðar en spilaði ekkert. Hann hefur á ferli sínum leikið einn landsleik með Englendingum.

Hull hefur hins vegar hætt við að fá miðjumanninn Delron Buckley frá Borussia Dortmund.

Þessi Suður-Afríkumaður æfði með Hull á dögunum og félagið bauð í hann.

,,Þeir höfnuðu tilboðinu. Þetta er búið nema að þeir lækki verðmiðann,\" sagði Phil Brown stjóri Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.