Fotbolti.net
29.07.08 - 20:05
Magnús Már Einarsson

Hvöt fær Bandaríkjamann (Staðfest)

Hvöt fær Bandaríkjamann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hvöt frá Blönduósi hefur fengið Alexander Fichera til liðs við sig frá Bandaríkjunum.
Þessi 24 ára gamli varnar og miðjumaður kom hingað til lands fyrir tveimur vikum og æfði með ÍBV en hann mun nú leika með Hvöt í annarri deildinni út tímabilið.

Alexander var á mála hjá FC Dallas í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann hefur einnig farið á reynslu til liða í Suður-Ameríku.

Ágúst Þór Ágústsson og Ragnar Heimir Gunnarsson fara utan í skóla í ágúst og mun Alexander styrkja lið Hvatar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.