Fotbolti.net
29.07.08 - 15:08
Hafliði Breiðfjörð

KR fær hinn unga Ingólf Sigurðsson frá Val (Staðfest)

Ingólfur í leik með U16 ára liði Íslands.

Ingólfur í leik með U16 ára liði Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nokkra athygli vakti í dag þegar einn efnilegasti leikmaður landsins, hinn 15 ára gamli Ingólfur Sigurðsson gekk í raðir KR frá Val þar sem hann er uppalinn. Ingólfur sem varð 15 ára gamall á árinu hafði í mars gengið í raðir Vals að nýju eftir ársdvöl hjá Heerenveen í Hollandi.
Ingólfur hefur alltaf þótt gríðarlega efnilegur og fór aðeins 14 ára gamall til Heerenveen í Hollandi þar sem hann var í eitt ár en sneri aftur til Íslands í vor þar sem ársleyfi foreldra hans úr starfi var að ljúka.

Ingólfur var framúrskarandi með U16 ára úrtakshópi Íslands sem mætti norsku liði hér á landi í febrúar og skoraði þar tvö mörk, þar af eitt beint úr aukaspyrnu.

Hann hefur vakið athygli nokkurra hollenskra liða og Heereveen hefur lýst áhuga á að fá hann aftur. Auk þess hafa lið eins og Reading á Englandi og Álasund í Noregi sýnt honum áhuga.

Eftir að hann yfirgaf Heerenveen lýsti Jeffrey Talan þjálfari liðsins því yfir að missirinn hafi verið mikill fyrir liðið og því hafi tímabilið ekki farið sem skyldi enda skoraði hann elleftu af 28 mörkum liðsins á tímabilinu þrátt fyrir að hafa ekki klárað það.

Ingólfur stefnir ekki á að spila erlendis næsta vetur þrátt fyrir áhuga erlendra liða en gerir ekki samning við KR að sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.