29.07.08 - 17:36
Magnús Már Einarsson
Chris Eagles til Burnley frá Manchester United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Burnley hafa fengið liðsstyrk því Chris Eagles er kominn til félagsins frá Manchester United.
Eagles, sem leikur oftast á kantinum, hefur gert þriggja ára samning við Burnley en hann kemur til félagsins fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur verið hjá United frá fjórtán ára aldri en ekki náð að festa sig í sessi í aðalliðinu.
Hann skoraði reyndar gegn Kaizer Chiefs og Portsmouth í æfingaferð United í Afríku á dögunum.
Á ferli sínum hefur Eagles verið á lánssamningi hjá Watford, Sheffield Wednesday og NEC Nijmegen í Hollandi.

Heimild: BBC