Fotbolti.net
29.07.08 - 22:46
Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Sara Björk Gunnarsdóttir.

Sara Björk Gunnarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks og mun leika með liðinu út þessa leiktíð. Þetta staðfesti hún sjálf í samtali við Fótbolta.net nú í dag en fjögur stærstu lið landsins, Valur, KR, Breiðablik og Stjarnan höfðu verið á höttunum eftir henni nú í félagaskiptaglugganum og hún valdi að fara í Breiðablik.
Fréttatilkynning frá Knattspyrnudeild Hauka
Haukar og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um að landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir fari á lán frá Haukum til Breiðarbliks út þetta keppnistímabil.

Ástæða lánsamnings þessa er að fyrirsjáanlegt er að keppnistímabili 1. deildarliðs Hauka mun ljúka um miðjan ágúst en með tilliti til landsliðsverkefna Söru Bjarkar með A-landsliðinu í haust var vilji allra aðila að Sara Björk væri í sem bestri leikæfingu fram að þeim verkefnum.

Lánssamningurinn rennur út 16. október 2008 og munu þá mál Söru Bjarkar verða endurskoðuð en hún er með samning við Hauka til loka árs 2009.
Sara Björk Gunnarsdóttir er 17 ára gömul og reis upp á stjörnuhimininn á síðasta ári. Hún hefur unnið sér sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins þrátt fyrir ungan aldur en hefur til þessa alltaf viljað vera áfram hjá uppeldisfélagi sínu, Haukum.

Haukar eru í næst neðsta sæti A-riðils 1. deildar kvenna og því er orðið ljóst að liðið mun ekki fara í umspil um sæti í Landsbankadeildinni og lýkur því keppni þetta árið 19. ágúst næstkomandi.

Íslenska landsliðið á gríðarlega mikilvægan leik gegn Frakklandi ytra 27. september næstkomandi. Landsbankadeildin stendur til 13. september og því fær Sara Björk að spila lengur fram að Frakklandsleiknum nú þegar hún leikur með Breiðablik.

Sara Björk Gunnarsdóttir er sem fyrr segir 17 ára gömul og eftir að hafa glímt við erfið meiðsli skaut henni upp á stjörnuhimninn á síðasta ári þegar hún lék með öllum landsliðum Íslands.

Síðan í mars í fyrra hefur hún leikið samtals 26 landsleiki, þar af 9 fyrir A-landslið kvenna sem hún hefur skorað tvö mörk í, en auk þess 13 leiki og 4 mörk með U19 ára liðinu og fjóra leiki með U17 ára liðinu.

Hún hefur leikið átta leiki með Haukum í 1. deildinni í sumar og skorað í þeim fimm mörk auk þess að leika einn leik í bikarnum. Hún skoraði 13 mörk í 11 leikjum með Haukum í fyrra en hafði hafið meistarflokksferil sinn árið 2004 er hún lék 3 leiki. Eftir það lék hún þó ekki fyrr en í fyrra vegna meiðsla.
Sara Björk Gunnarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.