Fotbolti.net
29.07.26 - 16:22
Kári Snorrason

Byrjunarlið Víkings gegn Hapoel: Niko Hansen á bekknum

Nikolaj Hansen byrjar á bekknum vegna meiðsla.

Nikolaj Hansen byrjar á bekknum vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva klukkan 17:30 í seinni leik liðanna í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.

Víkingur leiðir einvígið með einu marki eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2-1 í Fossvogi.

Leikurinn fer fram á Haladás leikvanginum í Szombathely í Ungverjalandi vegna átakana í Ísrael. Gert er ráð fyrir um 200-300 ísraelskum stuðningsmönnum á vellinum.
Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 0 - 0 Víkingur R.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá fyrri leiknum.

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings fyrir viku síðan en hann er á bekknum vegna ökklameiðsla. Hann kom ekki við sögu í 5-1 sigri Víkings gegn Keflavík síðastliðinn föstudag.

Aron Elís Þrándarson leiðir línuna í hans fjarveru. Tarik Ibrahimagic kemur þá inn í liðið og verður á miðjunni.



Tarik Ibrahimagic kemur inn í liðið.

Tarik Ibrahimagic kemur inn í liðið.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Aron Elís byrjar fremstur.

Aron Elís byrjar fremstur.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.