29.07.26 - 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gylfi: Kominn tími á VAR í íslensku deildina

Á æfingu í Ungverjalandi.

Mynd: Hörður Ágústsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leiknum á Víkingsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á æfingu í Ungverjalandi.

Mynd: Hörður Ágústsson
Myndbandsdómgæsla, VAR, er mikið á milli tannanna á fóki. Tæknin er ekki notuð í íslenska boltanum en hún er notuð í flestum stórum deildum heims og í öllum stærstu. Það er t.d. VAR í forkeppni Meistaradeildarinnar og hafa Víkingar spilað leiki þar sem VAR hefur haft áhrif.
Víkingur mætir Hapoel Be'er Sheva í Ungverjalandi í dag en liðin mættust fyrir átta dögum á Víkingsvelli þar sem mark var dæmt af eftir skoðun í VAR. Atvikið var umdeilt, en Víkingar nýttu sér það að ísraelska liðið komst ekki yfir og náðu að koma inn sigurmarki og leiða því með einu marki fyrir leikinn sem hefst klukkan 17:30 í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings og markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, var spurður út í VAR í viðtali fyrir leikinn gegn Hapoel.

TENGT EFNI
Sölvi sáttur: Vil fá VAR í íslensku deildina
„Já, ég held það sé alveg kominn tími á VAR í íslensku deildina. Ég held að flest félög séu með spiideo vélar á vellinum. Ég held það myndi líka hjálpa dómurunum, taka smá pressu af þeim. Það er mjög erfitt að sjá allt í rauntíma, erfitt að ná að negla allar stórar ákvarðanir á hálfri sekúndu. Það segir sig sjálft. Ég held það yrði betra fyrir deildina ef VAR kæmi til Íslands og örugglega þægilegra fyrir dómarana að hafa það til að bakka sig upp," segir Gylfi.
Hann er í byrjunarliði Víkings í Ungverjalandi. SIgurvegari einvígisins mætir að öllum líkindum Rauðu Stjörnunni frá Serbíu í 3. umferð forkeppninnar, en tapliðið mætir svissnesku meisturunum í Thun.
Hlusta má á viðtalið við hann í spilaranum hér að neðan.