29.08.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason
Segundo Castillo á láni til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miðvallarleikmaðurinn Segundo Castillo er genginn í raðir Everton frá Rauðu stjörnunni frá Belgrad.
Castillo, sem er 26 ára gamall skrifaði undir eins árs lánssamning og hann gæti leikið gegn Portsmouth á morgun fái hann leikheimild fyrir þann tíma.
Castillo hefur leikið 33 leiki fyrir þjóð Ekvador og hann er annar leikmaðurinn sem hefur gengið í raðir Everton í sumar, en hinn er danski varnarmaðurinn Christian Jacobsen.
,,Ég vona að ég geti gert mitt besta fyrir félagið,\" sagði Castillo.
,,Ég veit að Everton er stórt félag sem á sér sögu í keppnum eins og Uefa-bikarnum.\"

Heimild: BBC