Fotbolti.net
29.08.08 - 06:00
Gunnar Gunnarsson
Ítalska deildin

Jeremy Menez hefur gengið til liðs við Rómverja (Staðfest)

Jeremy Menez mun klæðast búningi Roma á næstu leiktíð

Jeremy Menez mun klæðast búningi Roma á næstu leiktíð

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Monaco hefur staðfest að leikmaður þeirra framherjinn Jeremy Menez sé nú genginn í raðir ítalska liðsins Roma eftir að bæði lið komust að samkomulagi um viðskiptin í gær.
Rómverjar hafa lengi haft augastað á hinum unga og efnilega framherja en tókst nú loksins að klófesta hinn 21 árs gamla Menez um það leiti sem dregið var í Meistaradeild Evrópu í gær.

Talið er líklegt að Rómverjar þurfi að greiða franska liðinu um 14 milljónir evra fyrir leikmanninn en engar upplýsingar hafa verið gefnar upp varðandi kaupin né hversu langan samning Menez gerir við Roma.

Í yfirlýsingu sem er að finna á heimasíðu Monaco segir:

,,Monaco og Roma hafa komist að samkomulagi um félagsskipti Jeremy Menez. Franski framherjinn mun spila með stórliði AS Roma á komandi leiktíð.\"

,,Menez kom til Monaco árið 2006 og spilaði 64 leiki fyrir félagið og skoraði 14 mörk í öllum keppnum fyrir liðið.

Menez er einn efnilegasti ungi leikmaðurinn í frönskum fótbolta í dag en leikstíll hans hefur stundum verið líkt við hina miklu goðsögn franskrar knattspyrnu Zinedine Zidane.

Hinn hæfileikaríki leikmaður var keyptur frá Sochaux og spilaði við hlið hins tékkneska Jan Koller í fremstu víglínu á síðustu sparktíð.

Jeremy Menez komst fyrst á forsíður í Frakklandi árið 2005, þegar hann skoraði þrennu aðeins 17 ára gamall en hann mun vera yngsti leikmaðurinn í frönsku deildinni til að afreka slíkt.

Menez mun nú snúa til Ítalíu þar sem hann verður við hlið Julio Baptista í fremstu víglínu en Rómverjar ætla sér væntanlega stóra hluti í ítölsku A deildinni á komandi tímabili.
Julio Baptista er einnig nýlega genginn í raðir Rómverja

Julio Baptista er einnig nýlega genginn í raðir Rómverja

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.